Fatfighter

Dust....

26.09.2007 17:56:20 / strong

Ég hafði mig í það að mæta á fund...

Já ég kom mér af stað, og vigtin sýndi hvorki meira né minna en 69,4kg ég er búin að bæta slatta á mig, enda átti ég ekki von á öðru eftir sukk í langan tíma. Það var nú gott að hitta vigtarráðgjafann aftur, ætla að reyna að standa mig og koma með matardagbók til hennar á næsta fund... Ég var í miklu tímahraki í gær, rétt náði að hoppa inn í Hagkaup og versla á hlaupum, það var mjög freistandi að kaupa e-ð óhollt og þægilegt bara í þetta "eina skipti" en ég stóðst það, en það var nú ekki mjög flottur kvöldmaturinn hjá okkur í gær, en hann var samt góður á bragðið. Grillaður kjúklingur, tómatur, gúrka og gulrót. Það var bara eitthvað svo sorglegt að sjá þessa eldamennsku hehehe :) Ég er að hugsa um að elda núna í kvöld Kjúklingabringu m/papriku og hvítlauk, ein af uppskriftum septembermánaðar. Nú er málið hjá mér að borða rétt, hver máltíð sem ég stend mig er sigur (er nú samt búin að smakka heimatilbúið vínarbrauð í dag, og fá mér tvo Extra mola) Gangi ykkur öllum vel!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 14:39:15 / strong

Tilraun númer veit ekki hvað!!!

Mér finnst nú ekkert nema eðlilegt að það kíki enginn lengur hér inn á þessa síðu... Enda ekki mikið um að vera. Nú er þriðjudagur, mér er lengi búið að líða illa, átti að vera að læra núna, rétt kíkti í bók. Ekki alveg með hugann við efnið.... Hef þó getað einbeitt mér að því að borða snakk, nokkra æði bita, stóran draum og Lindu buff og drukkið gos með.... Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað mér líður vel í maganum höfðinu og nú er samviskan líka farin að segja til sín. Úfff ég veit að ég á bara einn líkama, og ég fer ekkert sérlega vel með hann, síðustu mánuði hef ég haldið pizzustöðunum og sjoppum bæjarins gangandi með reglulegum viðskiptum þar. Ég er að reyna að mana mig í að byrja aftur á danska í dag, ég guggnaði á hádegisfundinum, vona að ég komi mér af stað á seinnipartsfundinn. ÉG verð þó að viðurkenna að ég hef sko alls ekki mikla trú á mér. HVað hef ég eiginlega oft reynt að breyta um mataræði????? Þvílík vitleysa í mér :( Æ ég vona bara að ég komi mér á vigtina á eftir, OG fari nú að hugsa betur um mig sjálfa og drullist til að breyta um lífstíl í eitt skipti fyrir öll!!! Ég veit að ykkur hinum gengur vel, og það er frábært. Haldið áfram að standa ykkur!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 21:46:52 / strong

Staðan í dag....

Staðan í dag er þannig, að ég á eftir 2 próf....  Frestaði einu því ég var ekki að höndla stressið. Lokaðist gjörsamlega í einu prófinu, mundi ekkert!!!! Veit ekki enn hvað stóð á því prófi, þannig að eins og ég átti von á þá féll ég í því prófi...  Þannig að ég fer í próf 30.og 31.mai....

Síðustu tvær vigtanir voru nú ekki gleðilegar, fyrst stóð ég í stað og núna síðast ÞYNGDIST ÉG um 800gr:S
Ég hef ótrúlegt en satt getað látið nammið í friði, og það hefur nú verið nóg af nammi í boði þegar maður hefur verið að læra með vinkonum sínum hehehe. En mataræðið var ekki 100% sem útskýrir þyngdaraukninguna.... Er ekki bjartsýn með vigtina á morgun....

Takk þið sem nennið að kikka hingað inn, ég er nú ekki sú duglegasta að blogga :$

 Bless í bili, og gangi ykkur öllum vel!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 15:00:33 / strong

Próf nr 2 búið!!!!

Blessaðar!!!

Já nú eru tvö próf búin af sex, bara fjögur eftir :D

Ég fór beint í vigtun eftir fyrsta prófið, hafði misst 800gr, sem var bara mjög gott.
Í gærkvöldi svindlaði ég aðeins, bekkjarsystir mín bauð mér í mat og ég fékk mér kjúlla og tacco hjá henni, ekkert grænmeti hjá mér í gærkvöldi og ekki vigtað!!!! En þessi dagur verður bara betri....

Takk allar fyrir öll kommentin og peppið fyrir prófin, eruð yndislegar.

Nú ætla ég að fara að læra, Haldið áfram að vera svona duglegar ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 08:18:27 / strong

Fyrsta prófið er eftir smá stund!!!

úff hvað hnúturinn er orðinn stór í maganum 8|
Það verður nú fínt þegar þetta próf er búið, þá hoppa ég á vigtina, því það er frí hjá vigtarráðgjöfunum á morgun 1.mai. Býst nú ekkert við einhverju brjálæðislegu þar....

Búin að fá fullt af ráðleggingum við blessaðri vöðvabólgunni, það sem hefur bjargað mér núna, og fyrir prófin í fyrra er að bara á mig vöðvaoliu frá urtasmiðjunni og setja heitt á herðarnar, eða bara setja olíuna í heitt bað, fáránlegt hvað það er gott. (urtasmiðjan.is,  svona ef þið viljið lesu um þetta fyrirtæki) :P

Þvílíka veðurblíðan sem er búin að vera frá því að ég byrjaði að læra fyrir prófin, það er frábært að aðrir geti þó notið þess þótt að við bekkjarsysturnar getum það ekki hehehe

Jæja nú ætla ég að fara að hafa mig til, og mæta í fyrsta vorprófið mitt þetta árið.

Bless bless.


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 14:21:48 / strong

Sól og yndislegt veður

Mikið vil ég þakka ykkur fyrir allt klappið á bakið sem ég fæ, hvatningin gefur mér svooo mikið.
Þessi blessaði próftími er að stríða mér, afhverju þarf ég að vera svona ýkt í öllu, borða ýkt mikið nammi (nema núna) verð ýkt brjálað stressuð fyrir próf?? Æ það þýðir ekki að tuða svona. Ég veit nú hvernig þessi önn var hjá mér, en það eru bjartir tímar framundan. Ég ætla að bíða aðeins með að taka eitt prófið, sem er 5eininga fag. Ég fann að það létti mikið á mér þegar ég tók þá ákvörðun. Tek það próf þá í lok mai. 
Mér líður samt eins og ég sé að svindla því ég á að tilkynna mig veika þann morgun sem prófið er, og koma með vottorð.... EIns gott að ég verði ekki veik í öðrum prófum:klikk:

ótrúlegt hvað líkaminn er fljótur að finna þegar hugurinn er órólegur, er undirlögð af vöðvabólgu núna, hef nú aldrei fengið svona mikla, þetta er niður í læri, fram í fingurgóma í rifbeinum, má ekki hlæja þá finn ég til hehehe. Leysi út bólgueyðandi lyf á morgun, og held áfram að lesa:$

Það er svo gaman að sjá hvað allir eru duglegir, það eru líka svo margar sem eru líka duglegar í ræktinni. Þið eruð frábærar.

Nú ætla ég ekki að babbla meira að sinni.

Hafið það gott, og munið að vera ávallt góðar við ykkur sjálfar!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 13:37:03 / strong

Heyrði í yndislegu lóunni í gær ;)

Heilar og sælar allar saman!

Ég verð nú að segja það að ég var voða montin á laugardag að standast freistingarnar, enn montnari að gera það aftur á sunnudag, ætla ekki að kvelja aðra með að segja hvað var á borðinu þann kaffitímann hehehe

Jú það var nú vigtun hjá mér í dag. Og ég er búin að missa 1,2kg. Að vísu skrifaði ráðgjafinn minn 1,1, en miðað við vigtina þá hefur hún óvart reiknað vitlaust. Já ég er að spá í 100 gr, heheh maður telur allt. Og ég fékk límmiða ohhh það er svo gaman, var búin að gleyma hvað límmiði getur glatt mann ótrúlega mikið.
Mikið vona ég nú að vigtin hafi sýnt ykkur fallegar tölur í dag :)

Nú ætla ég að taka saman skóladót, anda djúpt og byrja að læra.... Eða kannski ég fái mér stuttan göngutúr áður, vöðvabólgan að drepa mig!!!

Vona að þið afsakið að núna hef ég ekki tíma til að kíkja á ykkur, en hlakka ofboðslega til að sjá hvað ykkur gengur vel næst þegar ég hef tíma til að kíkja hring. Þið eruð svo duglegar allar og það er svo hvetjandi að fylgjast með ykkur. EN ég lofaði nú að láta heyra í mér í dag.

 

Farið vel með ykkur og njótið lífsins.


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 20:33:10 / strong

One með U2

Heilar og sælar!!!

Takk fyrir mig, jamm það er ekki gaman að vera að eiga við þetta blessaða stress, en svona  er þetta nú, ég fékk þennan blessaða prófkvíða og hef þá kannski losnað við eitthvað annað leiðinlegt í staðinn, hver veit??8)

Ég og vinkona mín lærðum saman í allan dag, að vísu í sitthvoru faginu. Okkur finnst bara svo gott að læra saman, hefðum samt mátt gera það oftar í vetur huuummm....
Okkur var boðið í kaffi hjá tengdó uppáhaldsostakakan mín, geggjuðu vöfflurnar hennar með súkkulaði... En mín drakk bara pepsi max og spjallaði... Vinkona mín átti ekki til orð yfir því hvað henni fannst ég dugleg (hún þekkir mig mjög vel og veit hvað ég er hrikalegur sætindagrís)  EN sem betur fer tókst mér að standast þessa freistingu, þakklát fyrir það í hvert skipti sem mér tekst að standast einhverjar freistingar:D

Núna ætla ég að fara á Nings að borða ;)

Ég veit ekki hversu dugleg ég get verið að blogga og/eða kíkja á ykkur núna á næstunni á meðan skólastressið er, en ég mun þó allaveganna láta í mér heyra á þriðjudag. Vonandi fyrr.

Heyrumst!


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 12:44:55 / strong

stress.....

Sælar allar og Gleðilegt sumar!!!

Hér er ekkert merkilegt að frétta, matarboð í gær, vigtaði kjötið með augunum, og grænmeti með, fékk mér svo grænmeti þegar ég kom heim. Fermingarveisla í gærkvöldi (hafði ekki tíma til að koma um daginn) fékk mér ekkert þar. Tók loforð af veisluhöldurum að mæta í mat í kvöld... verð að fá mér grænmeti áður og enn og aftur vigta með augunum. úff ekki spennandi að fara á vigtina næsta þriðjudag :$

Núna er ég bara að drepast úr stressi og áhyggjum útaf skólanum, 10 dagar í próf, gengur ekkert að komast yfir  námsefnið. Því helv vanlíðanin í vetur hafði áhrif á DDV og skólann. Það var ekkert DDV og varla skóli á tímabili aaarrrrggg:evil:  Vá ég er nú vön  að vera stressuð fyrir próf, en ekki á það bætandi eftir svona vetur.... úff verð að hætta ég er bara að tuða um hvað ég er að deyja úr stresssssssiiiii:!:

Gangi ykkur vel og njótið lífsins allar saman, þið eruð að standa ykkur svoooo vel, til hamingju með það allar saman.


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 19:53:54 / strong

Hug you Squeeze you með Stevie Ray Vaughan

Í dag var vigtunardagur hjá mörgum okkar. Svo var nú einnig hjá mér. Alltaf ánægjulegt þegar talan lækkar, mín lækkaði um 400gr. Þá er bara að stefna á að léttast helst meira í næstu viku:lol: Ég hlakka svo til að kíkja á eina bloggvinkonu mína hér, hún er sennilega komin niður fyrir þriggjastafa tölu, sem hefur víst ekki gerst lengi hjá henni. Vá ég hlakka svo til að kíkja á hana:D    

 

Enn og aftur verð ég að þakka ykkur fyrir sem kíkið á síðuna mína og skrifið í gestabókina. Það er svo frábært þegar þið hvetjið mig áfram, það gefur mér svooo mikið, takk takk takk fyrir. 

 

Um daginn var ég að lesa námsefni um svefn og svefnvandamál. Í einni greininni rakst ég á frábæra vísu sem er með mikinn sannleika; held við ættum að fara eftir þessum heilræðum:

 

Þegar lundin þín er hrelld

Þessum hlýddu orðum: 

með sjó eða sittu við eld.

Svo kvað völvan forðum

(kann ekki að hafa einfalt línubil... Einhver gáfaðri en ég má alveg kenna mér það hehehe)


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 21:48:06 / strong

Í tígullaga dal með Todmobile

Heilar og sælar dömur! Held að það sé nokkuð öruggt að það eru bara konur sem lesa þetta, allaveganna kvitta engir herramenn hehehe. 

Nú liggur vel á minni, var ótrúlega dugleg í dag að reyna að vinna upp í einu fagi, og það sem er ekki síður betra, er að ég stóð mig í mataræðinu sem er eins og þið vitið frábært!!!

Ég var að ljúka við að borða BLEIKT OG GOTT... Fékk mér sýrðan rjóma, sætuefni, smá möndludropa og hindber. Fann frosin hindber í frysti, afþýddi þau og borðaði þennan fína desert þetta kvöldið.

Við erum flest allar, ef ekki allar hér með markmið, við ætlum að missa svo og svo mörg kíló, við verðum að muna það að góð markmið fela í sér lítil, afmörkuð og raunhæf skref. Raunhæf skref eru td einn matartími í einu, einn dagur eða ein vika í einu. Jafnvel horfa á 1 kg í einu eða jafnvel 5kg í einu. Það er nauðsynlegt fyrir okkur að hafa þessi undirmarkmið, td vil ég missa 15kg, ég horfi á einn dag í einu, og einnig ætla ég að hugsa um 5kg, svo aftur 5kg og svo framvegis. Leiðina þurfum við að skipta niður í áfanga líkt og leiðum milli tveggja staða. Til dæmis var leið yfir heiði skipt upp með vörðum með reglulegu millibili.  Ef skyggnið var slæmt sást ekki öll leiðin, EN hægt var að stefna að næstu vörðu, þegar þeim áfanga var náð var hægt að taka mið á þá næstu og svo koll af kolli þar til komið var á leiðarenda. Eins er með markmiðin okkar.  Við erum allar með okkar vörður á leiðinni sem við stefnum af, og langtímamarkmiðið "að komast yfir heiðina" eru mismörg kíló hjá okkur :P

Munum eftir vörðunum, verum glaðar með hverja vörðu sem við náum til :P

 Gangi ykkur öllum áfram vel!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 11:10:16 / strong

They dance alone með Sting

Heil og sæl öll sömul :lol:

Fyrst vil ég þakka fyrir kommentin og hrósið, ég er nú kannski ekkert að standa mig of vel í náminu þótt mér hafi gengið vel í verklega. Niðursveiflan hér hafði líka áhrif á námið í 2-3 mánuði... En auðvitað reyni ég að vinna það upp!!!     

Mikið geta draumar verið skrýtnir, stundum svo yndislegir, stundum svo erfiðir... Mig dreymdi tvo erfiða drauma í nótt, var bara frekar þreytt í morgun eftir þá, merkilegur mannsheilinn...

Jæja ef ég hugsa nú um mataræðið, fyrstu "réttu" vikuna hjá mér í langan tíma. Auðvitað er ég búin að svindla, ég er óþolandi :klikk:   Svindlið er: Of oft kjöt, þ.a.l. of lítill fiskur. Hamborgarabrauð á föstudagskvöldið og 2 sneiðar piparostur. Matarboð í gærkvöldi, vigtaði ekki, fékk yndislegt lambakjöt, kartöflur og salat með, samt ekki 300 gr... 4litlar kökur í eftirrétt, úff ætlaði ekki að fá mér, ákvað ÞVÍ MIÐUR að smakka og ég borðaði fjórar:cry: Svo var ég vakin í nótt til að sækja fólk í bæinn og var svo svöng að ég borðaði eina bera pylsu...  Svo alla vikuna var það bara í gær sem ég drakk allt vatnið mitt...  En eins og ég segi alltaf, og er öruggleg orðið að einkunnarorðum mínum: BATNANDI MÖNNUM ER BEST AÐ LIFA!

 Vona að þið njótið sunnudagsins og gerið eitthvað skemtilegt með þeim sem ykkur þykir vænt um :P


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 20:13:46 / strong

kæra dagbók...

Hehe aldrei lagði ég í það að halda dagbók þegar ég var yngri, margar vinkonur mínar gerðu það, flestar í læstri dagbók. Ég átti nú svoleiðis bók en skrifaði nú lítið í hana. En nú er ég að halda mína dagbók, og það á netinu hehehe

Ég var að klára verknámið í dag, og mér gekk mjög vel fékk frábæra umsögn, og stóðst semsagt verklega námið þessa önn:D

Ég er ekki eins svöng í dag eins og í gær, það var rosalegt hvað ég var hungruð, þrátt fyrir að hafa borðað allt sem ég mátti borða, nema eins og svo oft þá klikkaði fitan og vatnið eitthvað hjá mér... En batnandi mönnum er nú best að lifa, eins og ég segi svo oft 8)´

Þetta verður bara stutt í dag, ætla að fara að læra og klára það sem ég á eftir að borða ;)

 Gangi ykkur áfram vel!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 22:28:57 / strong

Set markið hátt núna!!!

Ég veit ég hef oft reynt að byrja að taka mig á og ekkert gengið... EN nú skal ég!!! Markið er sett á að losa mig við ljót 15kg!!!!   Þetta gengur ekki svona lengur, nenni ekki að vera eilíft algjör aumingi!!!

En eins og áður tek ég einn dag í einu, og ætla að verðlauna mig þegar ég hef misst 5kg, búin að missa 1/2 kg núna :D

Merkilegt hvað ég er samt búin að vera svöng í dag, ég er ein af þeim fáu eða ekki sú eina sem er svöng á DDV, það hlýtur að vera því ég var farin að borða svo hrikalega mikið og óhollt, var sjálfsagt búin að venja líkamann á skelfilega mikið magn af mat og nammi á hverjum sólahring. Ég má ekki gleyma því að ég á aðeins einn líkama og eitt líf, eins gott að fara vel með sig :D

 

Gangi ykkur öllum vel og farið nú vel með ykkur :P


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 07:13:56 / strong

Dagur 1 gekk vel ;)

Það var frábært að fara að sofa í gærkvöldi, dagurinn hafði gengið ágætlega. Kláraði að vísu ekki ávaxta skammtinn, bara vegna þess að ég gleymdi að nesta mig líka með ávöxtum. Er í verknámi núna, og var á kvöldvakt Eldaði mér kvöldmat í gærdag og tók með mér ;)  Ég er stoltust af því að það var stærðarinn girnilegu Machintos baukur á borðinu hjá okkur allan tímann, og ég fékk mér engan mola8) Bara sigur!!!!

Vona að þessi dagur verði líka góður hjá mér og ykkur öllum. Eigið góðan dag :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734529 dögum
RSS tengill
Hven�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734529 dögum