Staðan í dag er þannig, að ég á eftir 2 próf.... Frestaði
einu því ég var ekki að höndla stressið. Lokaðist gjörsamlega í
einu prófinu, mundi ekkert!!!! Veit ekki enn hvað stóð á því prófi,
þannig að eins og ég átti von á þá féll ég í því prófi...
Þannig að ég fer í próf 30.og 31.mai....
Síðustu tvær vigtanir voru nú ekki gleðilegar, fyrst stóð ég í
stað og núna síðast ÞYNGDIST ÉG um 800gr
Ég hef ótrúlegt en satt getað látið nammið í friði, og það hefur nú
verið nóg af nammi í boði þegar maður hefur verið að læra með
vinkonum sínum hehehe. En mataræðið var ekki 100% sem útskýrir
þyngdaraukninguna.... Er ekki bjartsýn með vigtina á morgun....
Takk þið sem nennið að kikka hingað inn, ég er nú ekki sú
duglegasta að blogga 
Bless í bili, og gangi ykkur öllum vel!!!